Björgólfur boðar Hafskipsuppgjör Kristinn Hrafnsson skrifar 18. júlí 2008 15:29 Ragnar Kjartansson, fyrrverandi forstjóri og stjórnarformaður Hafskipa, var jarðsunginn í morgun.
Útför Ragnars Kjartanssonar fyrrverandi forstjóra og stjórnarformanns Hafskipa fór fram í Bústaðarkirkju í morgun. Í minningargrein um Ragnar í Morgunblaðinu í dag upplýsa fyrrverandi samherjar hans í Hafskipi, þeir Björgólfur Guðmundsson og Páll Bragi Kristjónsson að unnið sé að því gera Hafskipsmálið upp. Fregnir hafa borist af því að hópur sérfræðinga á vegum Björgólfs hafi misserum saman unnið að því að velta við öllum steimum í máinu. Í minningargrein Björgólfs og Páls Braga um Ragnar segir að undanförnu hafi bakgrunnur Hafskipsmálsins og málareksturinn verið tekinn til gaumgæfilegrar skoðunar, með það að markmiði að leiða allan sannleika málsins í ljós. Af þeirra hálfu sé Hafskipsmálið ekki uppgert. Margt vina Ragnars var viðstatt útförina í dag. Þar voru meðal annars Björgólfur Guðmundsson, Friðrik Sophusson og Sigríður Dúna Kristmundsdóttir, Björn Bjarnason, Geir Hilmar Haarde og fleiri.Í öðrum minningargreinum um Ragnar var iðulega minnst á Hafskipsmálið og eru greinarhöfundar ómyrkir í máli. Hér eftir fara örstutt brot úr greinum þeirra Péturs Sveinbjarnarsonar, Sigurðar Hafstein, Helga Magnússonar og Styrmis Gunnarssonar. „Hafskipsmálið er vonandi síðasta „galdrabrennan" á Íslandi," Pétur Sveinbjarnarson. „...stærsta og alvarlegasta réttarfarshneyksli Íslandssögu síðari tíma." Sigurður Hafstein. „Hafskip var knúið í gjaldþrot." Helgi Magnússon. „Samfélag okkar á eftir að horfast í augu við sjálft sig vegna Hafskipsmála..." Styrmir Gunnarsson.
Mest lesið Reynslubolti kveður lögregluna Innlent Leitaði á lögreglustöð til að komast úr járnunum Innlent Rannsaka tengsl skotárásarinnar við annað morð Erlent Sex um borð í einkaþotu sem hrapaði Erlent Morðinginn í Brown háskóla fannst látinn Erlent Evrópa samþykkir 90 milljarða evra lán til Úkraínu Erlent Mikið álag á bráðamóttökunni á Akureyri Innlent Fimm ára dómur fyrir hnífaárás á fjölskylduföður Innlent Sex hundruð miðar á vettvangi morðsins: „Fokking hálfvita fífl bæði tvö!!!!“ Innlent Nauðsyn að skýra betur hvort eða hvenær læknar megi rjúfa þagnarskyldu Innlent Fleiri fréttir Reynslubolti kveður lögregluna Leitaði á lögreglustöð til að komast úr járnunum Mikið álag á bráðamóttökunni á Akureyri Magnús Þór sjálfkjörinn Fimm ára dómur fyrir hnífaárás á fjölskylduföður Telur hagræðingaráformin þau metnaðarfyllstu Nauðsyn að skýra betur hvort eða hvenær læknar megi rjúfa þagnarskyldu Selfyssingar í 60 plús heilsueflingu klárir í jólin Skoða að koma á ferjusamgöngum milli Skotlands og Seyðisfjarðar Viðreisn gæti reynst í lykilstöðu milli blokkanna Frumvarp um kílómetragjald samþykkt og þingmenn komnir í jólafrí Barnavernd fylgist með fleiri ófrískum konum í neyslu en síðustu ár Fleiri óléttar konur í neyslu á borði barnaverndar og spennandi kosningar framundan Langvarandi einangrun ungrar konu gagnrýnd af Amnesty Selfoss stöðvaður í Bretlandi Þrettán nýir rafknúnir strætisvagnar teknir í notkun Zuism tekið af trúfélagaská eftir áralöng svik og pretti Mun áfram leiða lista Framsóknar í Múlaþingi Töpuðu 133 milljónum króna á kosningaári Reyndu að koma útlendingafrumvarpi að á síðustu stundu Súlunesmálið: Skoða þurfi lög er varða þagnarskyldu Samþykktu tillögu um uppbyggingu á Sorpu-lóð við Dalveg Spurningum Sigmundar Ernis svarað og málið ekki aftur í nefnd Þingstörfin á lokametrunum og styttist í jólafrí Naustin án bíla og eins og „löber“ með íslensku prjónamynstri Taka enn tuttugu þúsund króna beygju Ekið á kyrrstæðan bíl á Suðurstrandarvegi „Ellibætur“ frá ríkinu eigi að heyra sögunni til Áttu að taka tillit til þess að talsmaðurinn klikkaði Guðrún vinsælli en Agnes og traust til kirkjunnar á uppleið Sjá meira