Tónlist

Haffi Haff syngur um Bin Laden

Haffi haff sendir frá sér lagið Bin Laden.
Haffi haff sendir frá sér lagið Bin Laden. Fréttablaðið/Eyþór
„Það er hægt að túlka þetta sem pólitískt lag," segir Haffi Haff sem er að senda frá sér lagið Bin Laden. Danslag af dýrari gerðinni með snert af ádeilu.

„Það er verið að benda á ákveðna hluti sem eru að gerast í heiminum," segir Haffi en lagið er eftir Steina nokkurn og textinn líka. „Hann er snillingur. Hann valdi akkúrat réttu orðin í textann."

Haffa skaut upp á stjörnuhimininn hérlendis með laginu Wiggle wiggle song eftir Svölu Björgvinsdóttur. Lagið sat í nokkrar vikur á toppi íslenska listans á FM957 og var geysivinsælt. „Það er ekki hægt að gera það og ekkert meira," segir Haffi sem vinnur nú að sinni fyrstu plötu.

Haffi er alinn upp í Bandaríkjunum en er alkominn til Íslands. „Auðvitað, ég er alveg fluttur hingað heim. Búinn að kaupa mér íbúð og er í fjórum vinnum hérna," segir Haffi. Hann segist vera rétt að byrja í tónlistinni en toppurinn sé ekki markmiðið.

„Ég vil bara vinna við tónlist sama hvert það svo leiðir mig. Ég elska að vinna að tónlist og sef ekki mikið," segir hinn ofurhressi Haffi Haff sem mun frumflytja Bin Laden í Sjallanum á Akureyri í kvöld þar sem Merzedes Club spilar einnig. Haffi stígur á svið með Merzedes Club enda samdi hann eitt lag á plötu sveitarinnar. - shs






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.