Formúla 1

Kubica og Heidfeld hjá BMW 2009

BMW vann fyrsta sigur sinn á þessu ári með Robert Kubica og Nick Heidfeld hefur átt ágæta spretti á köflum.
BMW vann fyrsta sigur sinn á þessu ári með Robert Kubica og Nick Heidfeld hefur átt ágæta spretti á köflum. mynd: kappakstur.is

BMW Formúlu 1 liðið staðfesti í dag að Þjóðverjinn Nick Heidfeld og Pólverjinn Robert Kubica verða áfram hjá liðinu á næsta ári. Christian Klien frá Austurríki verður áfram þróunarökumaður BMW.

Síðustu mánuði hafa verið miklar vangaveltur um það að Heidfeld fengi ekki sæti hjá liðinu og Fernando Alsono kæmi mögulega í hans stað. Það hefur nú verið flautað formlega af, en Alonso hefur dregið mjög að gefa BMW og Honda svar, en bæði lið hafa sóst eftir starfskröfum hans. Möguleikar Alonso eru nú aðeins hjá Renault og Honda, en fyrri kosturinn þykir enn líklegastur. Alonso vann síðasta mót með Renault, í Singapúr.

BMW hyggst sækja af krafti í þremur síðustu mótum þessa árs, en keppt er á Fuji brautinni í Japan um næstu helgi. Kubica á enn möguleika á meistaratitili, þó Lewis Hamilton og Felipe Massa sé enn talsvert ofar í stigamótinu.














Fleiri fréttir

Sjá meira


×