Erlent

Krúnukúgarinn fékk fimm ára fangelsisdóm

Óli Tynes skrifar

Íslendingurinn Paul Aðalsteinsson öðru nafni Ian Strachan var í dag sakfelldur fyrir að hafa reynt að kúga 50 þúsund sterlingspund út úr meðlimi bresku konungsfjölskyldunnar.

Hann var dæmdur í fimm ára fangelsi.

Paul Aðalsteinsson var í félagi við annan mann. Þeir höfðu tekið upp á myndsíma viðtal við fyrrverandi starfsmann konungsfjölskyldunnar, þar sem hann sagði að hann hefði haft mök við viðkomandi og neytt með honum eiturlyfja.

Félagarnir reyndu fyrst að selja breskum slúðurblöðum upptökurnar, en ekkert þeirra vildi líta við þeim. Þá sneru þeir sér að hinu konungborna fórnarlambi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×