Formúla 1

Massa dæmdur sigur á Spa

Sigurinn var dæmdur af Hamilton
Sigurinn var dæmdur af Hamilton AFP

Lewis Hamilton hefur fengið sigur sinn í Belgíukappakstrinum dæmdan af sér eftir að sýnt þótti að hann hefði brotið reglur. Hann fékk 25 sekúndna refsingu og fellur því niður í þriðja sæti í keppninni.

Það var því Felipe Massa sem sigraði á Spa í dag og Nick Heidfeld varð þriðji. Þetta þýðir að forysta Hamilton í keppni ökuþóra er aðeins tvö stig.

Hamilton þótti hafa stytt sér leið í gegn um beygju þegar hann var að berjast um fyrsta sætið við Finnann Kimi Raikkönen, en sá féll úr leik eftir að hafa ekið út af brautinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×