Lífið

Dr. Spock í spinning

Saman í spinning. Dr. Spock og Gillzenegger elduðu grátt silfur í Eurovisionkeppninni í vor en sameinast nú í Sporthúsinu. Fréttablaðið/VALLI
Saman í spinning. Dr. Spock og Gillzenegger elduðu grátt silfur í Eurovisionkeppninni í vor en sameinast nú í Sporthúsinu. Fréttablaðið/VALLI

Þeir Óttarr Proppé og Finni í Dr. Spock stigu í fyrsta sinn inn í líkamsræktarstöð þegar þeir kynntu sér aðstæður fyrir útgáfutónleika sína í Sporthúsinu. Gillzenegger skipuleggur giggið með þeim.

Platan Falcon Christ með hljómsveitinni Dr. Spock er að koma út. Haldnir verða nýstárlegir útgáfutónleikar í Sporthúsinu í hádeginu á miðvikudaginn. Þar ætlar sveitin að spila í spinning-tíma. Sjálfur Gillzenegger, Egill Einarsson, hefur verið sveitinni innan handar við að skipuleggja giggið. „Já, þeir eru nú ekki beint vel tengdir í þessum geira svo ég hjálpaði þeim að læna þessu upp," segir Gillz. „Það var gaman að sjá þá koma hérna inn í Sporthúsið til að skoða aðstæður. Þeir hafa greinilega aldrei komið í líkamsræktarstöð áður og voru satt að segja hálf skelkaðir."

Gillzenegger ætlar ekki að taka tímann að sér þótt auðvitað mæti hann og hjóli. „Ég er ekki harður í spinninginu enda kraftlyftingamaður. Valið stendur núna á milli tveggja ljóshærðra dama með júllur eða Danna, sem er snargeðveikur. Auðvitað væru júllurnar góðar upp á útsýnið en ég held ég splæsi samt í Danna. Hann er nógu geðveikur til að passa við Spockið."

„Það verður mjög forvitnilegt að sjá hvernig spinningkennarinn heldur utan um þetta. Það er svo mikið um taktbreytingar hjá okkur," segir Finni, söngvari Dr. Spock. „Við ætlum auðvitað að spila fulla tónleika og búumst við miklum svita og brjálæði."

„Okkur finnst óskiljanlegt að líkamsræktarsalir séu ekki fyrsta val tónlistarmanna þegar kemur að tónleikum," segir Óttarr Proppé, hinn söngvari sveitarinnar. „Hraust sál í hraustum líkama og allt það. Við teljum þetta fullkomna byrjun á „skítatúrnum" okkar sem mun standa fram á sunnudag."

Gillzenegger segir mikinn áhuga á spinning-tónleikum Dr. Spock - „Það er meira að segja hringt frá öðrum líkamsræktarstöðvum. Við getum auðvitað ekki bannað fólki að koma."drgunni@frettabladid.is








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.