Handbolti

Tap fyrir Spánverjum

Mynd/Vilhelm

Íslenska karlalandsliðið í handbolta tapaði í kvöld fyrir Spánverjum 38-32 á æfingamóti sem fram fer í Frakklandi. Spænska liðið hafði yfir í hálfleik 17-14. Íslenska liðið mætir heimamönnum á morgun.

Snorri Steinn Guðjónsson var markahæstur í íslenska liðinu með sjö mörk, Alexander Petersson skoraði sex og Logi Geirsson og Róbert Gunnarsson fimm.

Næstir voru Ólafur Stefánsson (4), Guðjón Valur Sigurðsson (3), og Sigfús Sigurðsson (1). Birkir Ívar Guðmundsson skoraði eitt mark yfir allan völlinn úr markinu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×