Erlent

Barn hrifsað af móður sinni í Danmörku

Óli Tynes skrifar

Tveir grímuklæddir menn rændu í dag fimm ára strák úr bíl móður hans í Virum í Danmörku. Móðirin var að sækja strákinn á leikskóla.

Hún var búinn að setja hann í barnabílstólinn þegar mennirnir réðust á hana. Þeir rifu barnið út úr bílnum fleygðu því inn í svartan skutbíl og óku á brott.

Móðirin var blóðug eftir árásina. Lögreglan á Norður-Sjálandi hefur sett mikið lið til að leita að ódæðismönnunum.

Drengurinn heitir Oliver og er af kínverskum uppruna. Móðirin hefur sagt lögreglunni að hún hafi ekki þekkt ræningjana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×