Hver er þessi Dabbi Grensás? 7. janúar 2008 14:08 Davíð Smári Helenarson „
Davíð Smári eða Dabbi Grensás eins og flestir þekkja hann, var einn hættulegasti gangsterinn á götunni forðum daga. Hann rúlaði Breiðholtinu eins vel og hann rúlaði Grensásveginum. Hann var þekktur fyrir að lemja þá sem fyrir honum urðu og voru það margir." Þessa lýsingu á Davíð Smára Helenarsyni mátti sjá á hinni fornfrægu heimasíðu Fazmo-klíkunnar sem skaust inn á sjónarsviðið árið 2005. Félagsskapurinn varð þekktur fyrir ofbeldisverk sem meðlimir klíkunnar stærðu sig af á heimasíðunni. Davíð Smári hefur nokkuð verið í fréttum nú yfir jólin. Hefur hann meðal annars verið kærður fyrir árás á landsliðsmanninn Hannes Þ Sigurðsson. Einnig hefur hann verið bendlaður við árás á skemmtistaðnum Apótekinu nýverið þar sem karlmaður var fótbrotinn inni á klósetti. "Ég verð greinilega að gera eitthvað í mínum málum, það er alveg augljóst. Þetta er bara endapunktur," sagði Davíð Smári í samtali við Kastljósið eftir að hafa ráðist á knattspyrnudómara í kappleik í sumar. Davíð spilaði knattspyrnu í utandeildinni með liði sínu Dynamo Gym 80. Í leik gegn Vatnaliljum fékk hann rauða spjaldið og var nokkuð ósáttur með tæplega fimmtugan dómara leiksins. Davíð veittist að honum eftir leikinn og dómarinn endaði uppi á slysadeild. Viðbeinsbrotinn. „Eftir áttunda bekkin fór að halla á málunum, svo virtist sem hann ætlaði aldrei að verða hærri í loftinu en 162cm, og voru margir farnir að líta á sig sem jafninga Davíðs og endaði með því að Davíð losaði sig við nafnbótina fyrir fullt og allt." Davíð Smári er fæddur árið 1984 og ólst upp eins og nafnið geftur til kynna á Grensásveginum. Gekk hann bæði í Réttarholtsskóla og Hvassaleitisskóla og fór síðar í Borgarholtsskóla í Grafarvogi. Í ársbyrjun hitti Davíð Smári sjónvarpsstjörnuna Sveppa fyrir utan Hverfisbarinn. „Mér þykir þetta mjög leitt en hann var með þvílíka stjörnustæla við mig. Þegar hann fór að móðga fjölskyldu mína og kærustu var mér nóg boðið," sagði Davíð í samtali við DV eftir árásina. Sveppi sem þá lék í sýningunni Kalli á Þakinu í Borgarleikhúsinu þurfti að syngja fyrir börnin með glóðarauga daginn eftir. „Einn daginn kom soldill stuggur á milli ghettoanna í Reykjavík, kóngar íslands, FAZMO crew sem eiga rætur sínar að rekja í fossvoginum lentu upp á kant við kallanna sem búa hinum megin við Grensásveginn, en þar fór hetjan Dabbi a.ka Grensás fremstur í flokki. Komið var upp miklu einvígi milli víkingsins Ragga Ómars sem fór ríkjandi um fossvoginn og Dabba Grensás, en þegar Davíð sá óttleysi Ragnars gafst hann upp og boxaði við lærisvein Ragnars og endaði þetta allt í einum vinskap." Eftir árásina á Sveppa hringdi Davíð í sjónvarpsstjörnuna og baðst afsökunar. Þeir skildu sáttir að sögn Davíðs nokkrum dögum eftir árásina. „Mér finnst hann æðislegastur af öllum og er rosalega stolt af honum. Davíð hefur sitt skap en hann er mjög góður við mömmu sína og systur. Mér finnst hann líka að sjáfsögðu myndarlegasti maður veraldar enda hef ég dekrað hann mikið og maður lætur allt eftir honum. Hann er líka mjög fær bílagrúskari og gengur vel þessa dagana. Þrátt fyrir mikið skap vill hann öllum vel," sagði móðir Davíðs Smára í samtali við DV eftir árásina á Sveppa. Davíð var einn nokkurra manna sem veittust að manni í röð fyrir utan Hverfisbarinn í apríl 2005. „Vitni segja að fólki hafi verið ýtt til hliðar og hópurinn hafi komið sér fyrir fremst í svokallaðri V.I.P röð. Einn gesta varð það á að biðja mennina að sýna kurteisi og uppskar að launum hnefahögg sem rotaði hann samstundis. Því næst hófu þrír til fjórir menn að sparka í hann þar sem hann lá rotaður," sagði í frétt DV af málinu. „Davíð var einn af þessum sem var fljótur að byrja að vesenast í kellingaveseni og örugglega manna fyrstur. En eftir langa leit fann hann konu þegar hann var 16 ára og hékk í sambandi með henni í fjögur ár. En svo hélt lífið áfram og fór hann útum allan bæinn að hözzla. Síðan fór hann að pumpa að viti, umturnaðist í klæðaburði, keypti sér fake pirelli jakkaföt og nýjustu kúrekastígvélin og heillaði núverandi konu sína uppúr skónum og sér ekki sólina lengur fyrir henni, enda fer hann ekki útúr húsi án hennar." Davíð var síðan bendlaður við árás á landsliðsfyrirliða okkar íslendinga, Eið Smára Guðjohnsen, í sumar. Þar var Eiði hrint í götuna en Davíð bar af sér þær sakir í sjónvarpsviðtali. Eins og fyrr segir lenti landsliðsmaðurinn Hannes Þ Sigurðsson í klónum á Davíð Smára nú um jólin. Hann hefur kært Davíð ásamt þremur öðrum mönnum. Hlaut Hannes nokkuð alvarlega áverka og er meðal annars þríbrotinn í andliti og verður frá knattspyrnuiðkun í 6 vikur. Einnig mun Davíð hafa átt þátt í því að karlmaður var fótbrotinn á skemmtistaðnum Apótekinu skömmu síðar. Þrátt fyrir þessa ofbeldishegðun heldur móðir hans enn mikið upp á strákinn sinn. Harmar hún miskunarlausan umfjöllun um son sinn undanfarið. „Tekinn af lífi án dóms og laga," segir móðirin við DV í dag. Heimildir Vísis herma að Davíð Smári Helenarson hafi eignast dóttur nú í haust, með fyrrverandi kærustu sinni. Í umræddri lýsingu á Davíð Smára af Fazmo-síðunni segir að mottó hans í lífinu sé. „Að vera ekki minni maður en hinn." Hann slær síðan um sig á myspace síðu sinni þar sem hann vitnar í orð rapparans Tupac Shakur. „Only god can judge me" Kaldhæðni örlaganna er kannski sú að þessi lífsspeki rapparans er í miklu uppáhaldi hjá íslenskum knattspyrnumönnum. Landsliðsmennirnir Hermann Hreiðarsson og Gunnar Heiðar Þorvaldsson eru nefnilega báðir með lífsspeki rapparans tattóveraða á upphandlegginn.
Tengdar fréttir Við erum ekki ofbeldismenn „Fazmo er eitthvað sem er ekki til í dag. Það er með öllu ólýðanlegt og óþolandi að verið sé að bendla mig og Hallgrím ítrekað við eitthvað sem við komum ekki nálægt,“ segir Ingvar Þór Gylfason gjarnan kenndur við hina svokölluðu Fazmoklíku. 4. janúar 2008 13:38 Mest lesið Jón Ólafsson segir skilið við útvarpið Innlent Vita ekki hver áhrif fyrirætlanna Meta verða Innlent Hefur áhyggjur af rekstri skólans Innlent Rukkaði konuna fyrir heimferðina eftir að hafa nauðgað henni Innlent Úkraínskir hermenn séu farnir úr Kúrsk með hjálp Norður-Kóreu Erlent Aukið eftirlit til muna eftir brot bílstjórans gegn konunni Innlent Segir Pútin ekki vilja enda stríðið Erlent „Málinu verður ekki lokað fyrr en einhver axlar raunverulega ábyrgð“ Innlent Myndir: Ráðamenn heims fylgja Frans páfa til hinstu hvílu Erlent Þarf lítið til svo hægt yrði að hækka hámarkshraða í 120 Innlent Fleiri fréttir Hefur áhyggjur af rekstri skólans Vita ekki hver áhrif fyrirætlanna Meta verða Jón Ólafsson segir skilið við útvarpið Nýtt og glæsilegt svínabú í Eyjafirði fyrir 400 gyltur Aukið eftirlit til muna eftir brot bílstjórans gegn konunni Útför páfa og afbrot leigubílstjóra Hreindýr í sjónum við Djúpavog Rukkaði konuna fyrir heimferðina eftir að hafa nauðgað henni Réðu niðurlögum sinuelds við Húsafell Bensínverð rjúki upp en fari hægt niður Vanlíðan íslenskra ungmenna mikið áhyggjuefni Hælisleitendur bíði brottvísunar við óviðunandi aðstæður Þarf lítið til svo hægt yrði að hækka hámarkshraða í 120 Bullandi hagnaður hjá Sveitarfélaginu Ölfusi Ekki standi til að baka ríkinu skaðabótaskyldu vegna strandveiða Páfinn lagður til grafar og svör ráðherra um strandveiðar Þrettán gistu fangageymslur „Málinu verður ekki lokað fyrr en einhver axlar raunverulega ábyrgð“ Sex ára gamalt hús í viðgerð: Ekki við flötu þökin að sakast Þýskur kafbátur við Sundahöfn Eitt glæsilegasta hrossaræktarbú landsins til sölu Norðurlandamót í hermiakstri haldið á Íslandi „Ég hef aldrei séð þetta svona svakalegt“ Strætó og jeppi skullu saman á Reykjanesbraut Fangelsin sprungin og skoðunarferð um herskip Skólarnir í eina sæng Rannsókn í manndrápsmáli vel á veg komin Kennarar fagna því að flétta eigi kynjafræði inn í allar greinar Byrja að sekta þremur vikum eftir lok nagladekkjatímabilsins Ný öryggisúrræði taki við hjá „hættulegum“ föngum eftir afplánun Sjá meira
Við erum ekki ofbeldismenn „Fazmo er eitthvað sem er ekki til í dag. Það er með öllu ólýðanlegt og óþolandi að verið sé að bendla mig og Hallgrím ítrekað við eitthvað sem við komum ekki nálægt,“ segir Ingvar Þór Gylfason gjarnan kenndur við hina svokölluðu Fazmoklíku. 4. janúar 2008 13:38