Formúla 1

Schumacher hlakkar til meistaramótsins

Michael Schumacher keppir í meistarakeppni ökumanna á Wembley um næstu helgi og mætir m.a. rallmeistaranum Sebastian Loeb.
Michael Schumacher keppir í meistarakeppni ökumanna á Wembley um næstu helgi og mætir m.a. rallmeistaranum Sebastian Loeb. Mynd: Getty Images

Þjóðverjianum Michael Schumacher hlakkar til að takast á við marga af bestu ökumönnum heims á Wembley um næstu helgi. Frá því hann keppti í Formúlu 1 hefur hann tekið þátt í mótinu, sem kallast Race of Champions, auk þess að keppa í mótorhjólakappakstri annað slagið.

"Það sem er skemmtilegast við mótið á Wembley er að ég hitti alla hina gauranna sem eru í fremstu röð í kappakstri. Það er erfitt að koma svona móti heim og saman, en menn mæta afslappaðir og hafa yndi af því að keppa", segir Schumacher.

Wembley tekur 90.000 manns í sæti og er búið að breyta grasvellinum í malbikaða samhliða kappakstursbraut.

"Það er mjög skrítið að keyra á svona leikvangi, brautirnar eru mjóar, en það er magnað að hægt sé að breyta grasvelli í kappakstursbraut á nokkum dögum. Það er mikil skemmtun að keyra í svona keppni", sagði Schumacher.

Mótið á Wembley er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport á sunnudaginn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×