Bíó og sjónvarp

Smith aftur á flug

Seth Rogen, upprennandi grínsnillingur, leikur í nýrri mynd Kevins Smith.
Seth Rogen, upprennandi grínsnillingur, leikur í nýrri mynd Kevins Smith.

Aðdáendur Kevins Smith geta glaðst yfir því að annað sýnishorn úr myndinni Zack and Miri Make a Porno er komið á vefinn.

Myndin segir frá tveimur vinum, leiknum af Seth Rogen og Elizabeth Banks, sem eru svo blönk að þau ákveða að gera klámmynd. Sjá má Justin Long bregða fyrir í feluhlutverki og Darryl Robinson í aukahlutverki.

Sýnishornið er svokallað „red-band“ sem þýðir að myndin er full af nekt, blótsyrðum og öðrum óskunda. Sýnishornið má finna á empireonline.co.uk.

Smith-fróðir menn segja myndina hugsanlega meðal hans bestu og fullkomna blöndu óheftra efnistaka eins og sjá má í Jay and Silent Bob-myndunum og fullorðinslegrar nálgunar á samskipti kynjanna, eins og í Chasing Amy. Og svo er víst vísun í Star Wars, svo allir fái nú sitt. - kbs






Fleiri fréttir

Sjá meira


×