Körfubolti

Snæfellingar áttu ekki möguleika

Elvar Geir Magnússon skrifar

Sigurður Ingimundarson, þjálfari Keflavíkur, var í sigurvímu þegar Stöð 2 Sport tók viðtal við hann strax eftir að Íslandsmeistaratitillinn var í höfn.

„Þetta var frábær leikur og Snæfellingar áttu ekki möguleika gegn okkur í dag. Við höfum sýnt það að menn eiga ekki að tala illa um Keflavíkurliðið, menn eiga að vera stilltir," sagði Sigurður.

„Við tókum bara einn leik í einu og vorum einbeittir. Ég vil nota tækifærið og þakka Snæfelli fyrir góða rimmu. Þetta er frábært lið og það sýnir bara hversu sterkt Keflavíkurliðið er."

„Fyrir mig persónulega var þetta frábær sigur og einn sá alskemmtilegasti sem ég hef upplifað."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×