Viðskipti erlent

Líkur á hærri stýrivöxtum í Bandaríkjunum

Ben Bernanke, seðlabankastjóri Bandaríkjanna, í þungum þönkum.
Ben Bernanke, seðlabankastjóri Bandaríkjanna, í þungum þönkum. Mynd/AFP

Þegar næst verður hreyft við stýrivöxtum í Bandaríkjunum þá verða þeir hækkaðir. Þetta kemur fram í minnipunktum af síðasta vaxtaákvörðunarfundi bandaríska seðlabankans í síðasta mánuði, sem birtir voru í gær. Ekki liggur þó fyrir hvenær ákvörðun um slíkt mun verða tekin en reiknað er með óbreyttum stýrivöxtum vestanhafs fram í nóvember.

Seðlabanki Bandaríkjanna ákvað í byrjun þessa mánaðar að halda stýrivöxtum óbreyttum í tveimur prósentum.

Í minnipunktunum kemur fram að þótt menn telji nauðsynlegt að auka aðhald í peningamálum eftir snarpa lækkun stýrivaxta þá greini á um verðbólguvæntingar. Verðbólga í Vesturheimi hefur aukist nokkuð samhliða stýrivaxtalækkun síðastliðið árið.

Á sama tíma hefur verð á hrávöru verið að lækka síðustu vikurnar eftir að hafa staðið í hæstu hæðum sem reiknað er með að geti dregið úr verðbólgu. Helstu áhættuþættirnir liggja hins vegar í fjármála- og húsnæðisgeiranum en óvíst er hvort lausafjárkreppan sé að renna sitt skeið eða muni halda áfram og jafnvel verða dýpri. Reynist fjármálakreppan dýpri og erfiðari megi reikna með því að aðstæður á húsnæðismarkaði versni frekar, hefur Bloomberg-fréttastofan eftir sérfræðingum í málefnum bandaríska seðlabankans.

Fjármálaóstöðugleikinn hefur að sama skapi valdið óvissu í atvinnumálum en tæp hálf milljón Bandaríkjamanna hefur misst vinnuna frá áramótum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×