Bíó og sjónvarp

Fullvaxta menn, tólf ára enn

Litlir í anda Reilly og Ferrell leika stjúbræðurna óborganlegu í Stepbrothers.
Litlir í anda Reilly og Ferrell leika stjúbræðurna óborganlegu í Stepbrothers.

Gamanmyndaáhugamenn vita að þegar Will Ferrell og John C. Reilly mætast er voðinn vís. Seinast mættust þeir í Talladega Nights: The Ballad of Ricky Bobby, árið 2006 og veltu bíógestum úr sætum sínum með einstakri grínblöndu. Mætast þeir að nýju í Stepbrothers, sem frumsýnd er á föstudaginn.

Brennan Huff (Ferrell) er þrjátíu og níu ára karlmaður sem hefur aldrei farið að heiman frá fráskilinni móður sinni. Dale Doback (C. Reilly) er fertugur og hefur heldur ekki flutt að heiman heldur býr með föður sínum. Báðir eru atvinnulausir.

Móðir Brennans hittir föður Dales, þau verða ástfangin, giftast og flytja heim til Doback-feðganna. Synirnir tveir eiga þar með engra kosta völ en að deila herbergi, eða yfirgefa heimili sitt.

Þeir hata hvor annan til að byrja með en komast að því að þeir eru ekki svo ólíkir. Báðir eru þeir tólf ára stráklingar fastir í fullvaxta líkömum og lifa í eigin heimi. Eftir að þeir verða bestu vinir ákveða foreldrar þeirra að vísa þeim á dyr. Allt í einu verða þessir litlu strákar að fullorðnast. - kbs






Fleiri fréttir

Sjá meira


×