Lífið

ABBA-sveit aumkar sig yfir Íslendinga

Arrival
Arrival
Hinn margnefndi efnahagslegi „brimskafl" sem Ísland siglir nú í gegnum hefur vakið mikla samúð frænda okkar á Norðurlöndum.

„Þær hremmingar sem Íslendingar hafa gengið í gegnum undanfarnar vikur hafa ekki farið fram hjá okkur," segir Tomas Jernberg, umboðsmaður sænska ABBA-ábreiðubandsins Arrival. Sveitin er á leið hingað til lands með sýningu sína, „The Music of ABBA", en vegna hruns krónunnar var lengi vel óvíst hvort yfirhöfuð tækist að koma sveitinni til landsins.

Arrival liðar ákváðu því að hjálpa til og lækka þóknun sína svo af sýningunni gæti orðið. „Okkur fannst það vera það minnsta sem við getum gert fyrir frændur okkar í norðri," segir Tomas, og bætir við að sveitin hlakki mikið til ferðarinnar.

Arrival hefur ferðast með ABBA-sýninguna í þrettán ár - lengur en hljómsveitin ABBA starfaði - og sýnt í yfir 20 þjóðlöndum. Sýningin hefur notið mikilla vinsælda og hafa ABBA-aðdáendaklúbbar víða um heim kosið hana bestu ABBA-sýningu allra tíma. Gagnrýnendur hafa gengið svo langt að segja Arrival betri en upprunalegu ABBA-hljómsveitina.

Þrettán tónlistamenn skipa sveitina, og er allur tónlistarflutningur lifandi. Mikið er lagt í búningana en Arrival er eina hljómsveitin í heiminum sem hefur leyfi til að klæðast nákvæmum eftirlíkingum af búningum ABBA. Sveitin vinnur náið með höfuðpaurum ABBA, þeim Björn Ulvaeus og Benny Andersson, og er þessa dagana að gefa út áður óútgefið ABBA-lag sem ber heitið Just a notion.

Tónleikarnir verða laugardagskvöldið 8. nóvember kl. 21 og eru miðar seldir á midi.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.