Tónlist

Pikknikk spilar í Fríkirkjunni

Dúettinn Pikknikk heldur útgáfutónleika í kvöld til að fagna plötu sinni Galdur.
Dúettinn Pikknikk heldur útgáfutónleika í kvöld til að fagna plötu sinni Galdur.
Dúettinn Pikknikk, sem er skipaður parinu Þorsteini Einarsyni úr Hjálmum og Sigríði Eyþórsdóttur, hefur gefið út plötuna Galdur. Útgáfu­fyrirtækið Kimi Records dreifir plötunni sem hefur að geyma túlkun þeirra á blússkotinni þjóðlagatónlist.

Útgáfutónleikar vegna plötunnar verða haldnir í Fríkirkjunni kl 21 í kvöld og er miðaverð 500 krónur. Miðar verða seldir við innganginn og verður platan á tilboðsverði. Nálgast má frekari upplýsingar um Pikknikk á heimasíðunni www.myspace.com/pikknikk.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.