Ásmundur: Fáum ekki fálkaorðuna fyrir þetta silfur Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 4. október 2008 16:49 Ásmundur Arnarsson, þjálfari Fjölnis. Mynd/E. Stefán
Ásmundur Arnarsson, þjálfari Fjölnis, sagði að það væri afskaplega erfitt að missa af bikarnum annað árið í röð. Fjölnir tapaði í dag fyrir KR í úrslitum bikarkeppninnar en í fyrra tapaði Fjölnir fyrir FH. „Það var virkilega erfitt að tapa þessum leik aftur. Það er erfitt að kyngja svona silfurverðlaunum og ég efast um að við fáum fálkaorðuna fyrir þetta silfur," sagði hann og brosti. „En heilt yfir var þetta sanngjarn sigur hjá KR. Þetta gat svo sem dottið hvoru megin sem var. Við áttum fína spretti í fyrri hálfleik og áttum fína möguleika þá. En það vantaði lokasendinguna til að geta klárað færið." „Í seinni hálfleik náðum við ekki góðum takti í leiknum og þeir stjórnuðu honum alfarið, þó þeir hafi ekki fengið mikið af dauðafærum. Það var heldur dauft yfirbragð yfir leiknum og maður var farinn að undirbúa sig fyrir framlenginguna þegar markið kom." Hann segir að það hafi ekki verið ætlun Fjölnismanna að liggja svo aftarlega, sérstaklega í síðari hálfleik. „Fyrri hálfleikur gekk ágætlega upp hvað okkar leikskipulag varðar en við ætluðum að halda boltanum betur í þeim síðari og nýta okkur svæði inn á miðjunni hjá þeim þar sem við erum vel mannaðir." Hann segist þó vera ágætlega sáttur við sumarið hjá Fjölni. „Ég er svo sem ekki sáttur í dag en það er vel ásættanlegt fyrir Fjölni að vera í efri hluta deildarinnar og í bikarúrslitum. Engu að síður ætluðum við okkur titilinn í ár fyrst við töpuðum honum í fyrra. Við tökum þetta bara á næsta ári."
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Magnað heimsmet í hálfu maraþoni Sport Diaz kom Liverpool í toppmál Enski boltinn Pat Vellner valdi að fara sömu leið og Anníe Mist Sport Ekki sama hvort það er „fuck off“ eða „fuck you“ Fótbolti Sektar eigin leikmenn eftir tapið gegn Víkingum Fótbolti Wembanyama og Paul svindluðu og voru reknir úr keppni Körfubolti Armstrong til Man United frá PSG Enski boltinn Í beinni: Tottenham - Man. Utd | Tvö lið í brasi Enski boltinn Leeds mun banna stuðningsfólk sem syngur and-palestínska söngva Enski boltinn Gísli stórkostlegur í toppslagnum Handbolti Fleiri fréttir KR lánar Óðinn til ÍR Sjáðu fimm marka flengingu frá meisturunum Gylfi fyrirliði í jafntefli á Akranesi Víkingar með lægra tilboð en „grín“ í Gylfa Valur og Breiðablik í góðum gír í Lengjubikar kvenna Devine til Blika og má spila í kvöld Fimmtán milljón króna hagnaður hjá KSÍ FH safnaði yfir tveimur milljónum fyrir Píeta samtökin Grótta laus úr banni FIFA Þorri mættur í Stjörnuna og ætlar að vinna titla Herra Fjölnir tekur við Fjölni „Púsluspilið gekk ekki upp“ Víkingar hættir í Lengjubikarnum Ætla að spila í Grindavík: „Ábyrgð mín að koma liðinu heim“ Sif Atla ráðin framkvæmdastjóri Leikmannasamtaka Íslands Andri Rúnar með þrennu fyrir Stjörnuna í kvöld Þorri sagður á heimleið: „Verð þakklátur alla ævina“ Úlfur óvænt rekinn frá Fjölni Framarar fundu strax leið úr skammarkróknum Tvær þrennur í níu marka stórsigri Hrannar með þrennu gegn Þór Sjáðu sigurmark Örvars og önnur mörk úr Lengjubikarnum Íhugaði að lauma mynd af húsinu í myndaalbúm fjölskyldunnar ÍR vann níu FH-inga og Valskonur í stuði Hituðu upp fyrir Grikkina í snjónum: Danna þema hjá Víkingum Martraðarbyrjun Róberts í Víkingstreyjunni Einar heim í Hafnarfjörðinn Húsvíkingurinn frá KR til Þróttar Framarar lausir við Frambanann Cousins búin að semja við Þrótt Sjá meira