Viðskipti erlent

DeCode fellur eftir flug

Kári Stefánsson, forstjóri DeCode.
Kári Stefánsson, forstjóri DeCode.

Gengi hlutabréfa í DeCode, móðurfélagi Íslenskrar erfðagreiningar, féll um rúm 5,3 prósent og fór í 0,89 dali á hlut á bandarískum hlutabréfamarkaði í dag.

Bréfin hækkuðu um tólf prósent í gær.

Gengi hlutabréfa lækkaði almennt í verði. Svartsýni í skugga hás olíuverðs setti mark sitt á daginn á bandarískum hlutabréfamarkaði.

Líkt og greiningardeild Kaupþings benti á í dag var svartsýni neytenda vestanhafs í raun meiri en reiknað hafði verið með. Væntingarnar eru nú í algjöru lágmarki vegna aðstæðna í efnahagslífinu.

Væntingarvísitalan mældist 50,4 stig en reiknað hafði verið með að hún færi í 56,5 stig.

Miklu munar um að bandarísk stórfyrirtæki segja nú að aðstæður í efnahagslífinu, ekki síst verðlagning á hráolíu og lágt gengi bandaríkjadals gagnvart helstu gjaldmiðlum, muni setja strik í afkomutölur fyrirtækjanna. Verðið hækkaði frekar í dag og fór í rúma 137 dali á tunnu.

Stýrivaxtadagur er vestanhafs á morgun og reikna flestir fjármálasérfræðingar með því að bandaríski seðlabankinn muni halda vöxtum óbreyttum í tveimur prósentum. Almennt var talið áður að vextirnir gætu farið allt niður í eitt prósent. Sú ályktun var fyrir bí fyrir nokkru enda taldar líkur á að bankinn þoki vöxtunum upp á við með haustinu.

Dow Jones hlutabréfavísitalan lækkaði um 0,29 prósent og Nasdaq-vísitalan lækkaði um 0,73 prósent.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×