Erlent

Óttast að tugir þúsunda hafi farist

Guðjón Helgason skrifar

Óttast er að tugir þúsunda hafi farist þegar öflugur jarðskjálfti skók suð-vesturhluta Kína í morgun. Skjálftinn fannst alla leið til Peking í rúmlega 1500 kílómetra fjarlægð. Íslenskur námsmaður þar segir íbúð sína á 16. hæð hafa sveiflast til og frá. Hún náði síðdegis sambandi við vinkonu sína á skjálftasvæðinu. Ekkert amaði að henni eða fjölskyldu hennar.

Skjálftinn reið yfir á sjöunda tímanum í morgun að íslenskum tíma, rétt fyrir hálf þrjú eftir hádegi að staðartíma. Hann mældist 7,8 á Richter. Upptök skjálftans voru í Sichuan-héraði í suð-vesturhluta landsins um 90 kílómetrum frá héraðshöfuðborginni Chengdu. Hann fast allta leið til Peking sem er í rúmlega 1500 kílómetra fjarlægð og einnig í Taílandi og Víetnam.

Fjölmargir eftirskjálftar hafa orðið, þeir öflugustu 6,4 og 5 á Richter. Vel á tíunda þúsund týndu lífi í hamförunum en óttast að tala látinna eigi enn eftir að hækka.

Hu Jintao, Kínaforseti, hefur kallað út allt björgunarlið og sjálfboðaliðar streyma á vettvang. Hersveitir eru komnar þangað.

Wen Jiabao, forsætisráðherra, fór þegar á vettvang.

Kolbrún Ólafsdóttir, er í námi við Peking-háskóla. Hún segir að sér hafi brugðið. Húsið hennar hafi ruggað fram og til baka en ekki leiði á reiðiskjálfi eins og hún hafi heyrt og upplifað um jarðskjálfta. Meðan á stóð hafi hún spurt sig hvað væri að gerast og hvort þetta væri bara byrjunin.

Kolbrún býr á 16. hæði í fjölbýlishúsi og því ekki auðvelt að komast út að hennar sögn.

„Maður hugsaði hvort þetta væri bara upphafið og maður myndi hrynja niður," segir Kolbrún. „En síðan hætti þetta og það kom ekkert meira."

Kolbrún náði síðdegis sambandi við kínverska vinkonu sína sem fór í heimsókn til foreldra sinna í Sichuan-héraði. Hún og hennar fjölskylda voru ómeidd. Kolbrún segir að hún hafi lýst atburðunum og sagt alla dauðskelkaða. Fjölskyldan hafi þotið út úr húsinu þar sem hún býr og ekki þorað aftur inn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×