Viðskipti erlent

Paulson þvertekur fyrir að til standi að bjarga Lehman

Henry Paulson, fjármálaráðherra Bandaríkjanna
Henry Paulson, fjármálaráðherra Bandaríkjanna MYND/AFP

Síðan í morgun hafa gengið orðrómar um að einkaframtakssjóðir (e. private equity firm) eða hugsanlega Bank of America myndu kaupa Lehman Brothers, að því tilskyldu að Seðlabanki Bandaríkjanna og ríkissjóður gangist í ábyrgðir fyrir eignir Lehman.

Heimildamenn AP og Reuters staðhæfa hins vegar að Paulson hafi þvertekið fyrir að ríkið myndi koma með einhverjum hætti að yfirtöku Lehman.

Reuters hefur eftir heimildarmanni sínum: "Það er tvennt sem skilur þetta ferli frá Bear Stearns. Í fyrsta lagi hefur markaðurinn um langt skeið vitað við hverju var að búast og því haft nægan tíma til að gera viðeigandi ráðstafanir. Í öðru lagi auðveldaði seðlabankinn fjármálastofnunum aðgang að fjármagni, sem átti að gera markaðnum kleift að takast á við áföll sem þetta á skipulegan máta."

Stjórn Lehman hefur verið harðlega gagnrýnd fyrir að hafa líkt og stjórnendur Fannie Mae og Freddie Mac ekki tekist á við vanda fyrirtækisins fyrr en allt var komið í óefni, heldur barið höfðinu við steininn og staðhæft lengst af að allt væri í stakasta lagi. Því hafi ekki verið gripið til nauðsynlegra aðhaldsaðgerða, afskrifta og endurfjármögnunar fyrr en allt of seint.














Fleiri fréttir

Sjá meira


×