Sport

Berst við mann sem er 44 kílóum þyngri

Holyfield er eins og smástelpa við hliðina á tröllinu
Holyfield er eins og smástelpa við hliðina á tröllinu AFP

Gamla brýnið og fyrrum heimsmeistarinn Evander Holyfield á ekki öfundsvert verkefni fyrir höndum þegar hann stígur inn í hnefaleikahringinn í Zurich annað kvöld.

Hinn 46 ára gamli og fjórfaldi heimsmeistari mætir þá rússnesku "ófreskjunni" Nikolai Valuev sem leggur WBA beltið sitt í þugavigt að veði.

Holyfield er engin smásmíði sjálfur og vó rúm 97 kíló við vigtunina í dag. Andstæðingurinn er hinsvegar 213 sentimetrar á hæð og vegur 141 kíló.

Valuev er hæsti heimsmeistari í sögu hnefaleika, en þó hann sé ekkert unglamb sjálfur er hann ellefu árum yngri en Bandaríkjamaðurinn Holyfield.

Holyfield varð síðast meistari þegar hann vann John Ruiz í umdeildum bardaga fyrir átta árum síðan, en hans er því miður oftast minnst fyrir að vera maðurinn sem missti hluta af öðru eyranu í viðureign sinni við Mike Tyson á sínum tíma.





Box



Fleiri fréttir

Sjá meira


×