Innlent

Slasaður eftir árekstur við Gullinbrú

Ökumaður var fluttur slasaður á slysadeild í Fossvogi á öðrum tímanum eftir að bifreið sem hann ók hafnaði á staur við Gullinbrú. Að sögn sjúkraflutningamanna var maðurinn fastur í bifreið sinni eftir áreksturinn og þurfti að beita klippum til að ná honum út. Þær upplýsingar fengust hjá vakthafandi lækni á slysadeild að maðurinn væri ekki í lífshættu. Hann hefði slasast á fæti og gengist nú undir rannsókn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×