Formúla 1

Viktori boðið í Formúlu 2

Viktor Þór undirbýr sig fyrir keppni, en Guðrún Þórarinsdóttir móðir hans fylgist sposk með.
Viktor Þór undirbýr sig fyrir keppni, en Guðrún Þórarinsdóttir móðir hans fylgist sposk með. mynd: kappakstur.is

Viktori Þór Jensen hefur verið boðið að keppa í nýrri mótaröð sem verður undir merkjum FIA. Mótaröðin nefnist Formúla 2 og verður í umsjá fyrrum Formúlu 1 ökumanns.

Sá heitir Jonathan Palmer og er eigandi margra stærstu kappakstursbrauta Bretlands. Viktor keppti í Formúlu Palmer Audi mótaröðinni sem Palmer stýrði og keppti þar 2005 og 2006 og vann marga sigra. Viktor skipti síðan yfir í Formúlu 3 í ár, en gekk ekki vel hjá nýju liði og ákvað að draga sig í hlé og bíða betra tækifæris.

Hann er nú að skoða þátttölku í Formúlu 2 mótaröðinni sem verður undir merkjum FIA og mun keppa á sömu brautum og heimsmeistaramót í fólksbílakappakstri fara fram (World Touring Car Champinoship).

Williams liðið hannar bílanna í Formúlu 2 mótaröðina, en Audi mun útvega 4-500 hestafla vélar Bílarnir verða bæði sneggri og hraðskreiðari en Formúlu 3 bílar, en aflminni en GP 2 bílar sem eru næstu bílar fyrir neðan Formúlu 1 hvað afl varðar.

Formúlu 2 mótin fara fram víðsvegar í Evrópu og bauð Palmer Viktori sæti, en segir að mu færri muni komast að en vilja í þessa mótaröð, sem kostar minna að taka þátt í en Formúla 3. Viktor þarf þó að leita kostenda til að þiggja sætið og faðir hans vinnur nú í þeim málum Í Bretlandi, en þeir feðgar hafa einnig leitað hófanna á Íslandi, enda ekur Viktor með íslenskt keppnisskírteini. Faðir hans er kanadískur en móðirinn íslensk.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×