Formúla 1

BMW sýnir 2009 útlitið

Robert Kubica ekur BMW með 2009 útliti á brautinni í Barcelona í dag.
Robert Kubica ekur BMW með 2009 útliti á brautinni í Barcelona í dag. Mynd: Getty Images

Fjöldi Formúlu 1 liða æfir í Barcelona á Spáni næstu dagana og fyrsta æfing er í dag.

BMW mætti með 2009 útlit bílsins, sem vísar í það hvernig bílar keppnisliða munu líta út á næsta ári. Bíll BMW er gjörbreyttur frá síðasta ári og Robert Kubica og Christian Klien stýra fáknum nýja á æfingum.

Yfirbygging bílsins er samkvæmt 2009 reglum og fram og afturvængir eru mjög breyttir frá bíl þessa árs. Bæði mun einfaldari og mjórri að aftan og engir auka vængir eru á yfirbyggingunni, enda er það bannað samlvæmt nýjum reglum.

Ferrari er einnig á æfingunni, annar er með 2009 yfirbyggingu en hinn 2008. Mörg liðanna eru að prófa KERS kerfið svokallaða, þar sem afl sem verður til við hemlun nýtist í vélarsalnum með flóknum búnaði. Þá er Bridgestone mætt með raufalaus dekk, sem verða notuð á næsta ári.

Franski heimsmeistarinn í rallakstri, Sebastian Leob keyrir Red Bull keppnisbíl á æfingunni í dag. Hann segist stefna á brautaraksturs í framtíðinni, þó trúlega verða ekki Formúla 1, aldursins vegna. Loeb er fimmfaldur meistari i rallakstri.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×