Handbolti

Riðill kvennalandsliðsins í undankeppni HM

Elvar Geir Magnússon skrifar
Júlíus Jónasson, þjálfari Íslands.
Júlíus Jónasson, þjálfari Íslands.

Í morgun var dregið í riðla fyrir undankeppni heimsmeistaramótsins í handbolta kvenna. Ísland er í riðli með Póllandi, Slóvakíu, Lettlandi og Sviss.

Leikið verður í riðlunum seint í nóvember og mun efsta liðið í hverjum þeirra komast í umspil um sæti í úrslitakeppni HM sem haldin verður í Kína 29. nóvember til 13. desember 2009.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×