Erlent

Bush frestar heimflutningi hermanna frá Írak

George Bush forseti Bandaríkjanna.
George Bush forseti Bandaríkjanna.

George Bush hefur fallist á beiðni yfirmanns bandaríska heraflans í Írak um að fresta heimflutningi hermanna frá landinu.

David Petraeus hershöfðingi bað um að takmarkaður heimflutningur héldi áfram fram í júlí. Þá verði frekari flutningi frestað í 45 daga meðan verið sé að meta ástandið.

Um 140 þúsund hermenn verða þá í Írak. Forsetinn sagði um þessa ákvörðun sína að hann hefði sagt hernum að hann fengi allan þann tíma sem hann þyrfti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×