Tónlist

Uppselt á 20 mínútum

vilhjálmur vilhjálmsson
Tvennir minningartónleikar um Vilhjálm verða haldnir í Laugardalshöll í október.
vilhjálmur vilhjálmsson Tvennir minningartónleikar um Vilhjálm verða haldnir í Laugardalshöll í október.

Fjögur þúsund miðar seldust upp á aðeins tuttugu mínútum á minningartónleika um Vilhjálm Vilhjálmsson sem verða haldnir í Laugardalshöll 10. október.

Ákveðið hefur verið að halda aukatónleika 11. október og hefst miðasala á þá föstudaginn 12. september. Landslið söngvara kemur fram á tónleikunum og eru þar á meðal Björgvin Halldórsson, Bubbi Morthens, Diddú, Egill Ólafsson, Laddi, Lay Low, Páll Rósinkranz, Ragnheiður Gröndal og Stefán Hilmarsson. Sérstakir heiðursgestir verða Helena Eyjólfsdóttir og Þorvaldur Halldórsson. Miðaverð er á bilinu 4.900 krónur til 11.900.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.