Lífið

Metnaðarfull fylgdarþjónusta í kreppunni....eða?

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Aron mundar borinn á kynferðislegan hátt.
Aron mundar borinn á kynferðislegan hátt. MYND/Friðrik Örn

Ritstjórn Vísis barst ábending um tiltölulega metnaðarfulla heimasíðu ungs manns sem býður erótíska fylgdarþjónustu. Meðal þess sem kynnt er á síðu hans er „einstaklingsþjónusta eða hópar, sértilboð til saumaklúbba og hlutverkaleikir" og að sjálfsögðu er fullum trúnaði heitið.

 

Síðuna prýða myndir af manninum, tiltölulega fáklæddum í kynferðislega ögrandi stellingum með sterkri skírskotun í hlutverk iðnaðarmannsins þar sem meðal annars má sjá hann munda höggborvél á lostafullan hátt.

 

Vísir hafði samband við manninn sem segist heita Aron.

 

Til að gera langa sögu stutta kom innihald heimasíðunnar mjög flatt upp á hann og eftir stutt spjall kom upp úr kafinu að hann mun ganga í það heilaga í byrjun desember. Varð þá ljóst að um svokallaða steggjun væri að ræða og síðan góða lymskulega útfærð kerskni af hálfu vina hans.

 

Blaðamaður heyrði kvenmannsóp í bakgrunninum þegar Aron skoðaði heimasíðuna meðan á símtalinu stóð og upplýsti hann að þar væri móðir hans.

 

„Nei, ertu að grínast í mér!" hrópaði Aron upp þegar hann horfðist í augu við sjálfan sig hálfnakinn á lýðnetinu. „Þessar myndir voru teknar fyrir árshátíð hjá fyrirtæki sem ég vann hjá, við vorum að djóka aðeins," útskýrði Aron sem sagði að útilokað væri að hann myndi leggja fylgdarbransann fyrir sig. „Þetta er alveg rosalegt," voru lokaorð hans í símtalinu.

 

Vísir óskar brúðgumanum verðandi til hamingju.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.