Formúla 1

Tífaldur meistari í lið Frakklands á Wembley

Yvan Muller hefur keppt fjórum sinnum í meistarakeppninni og ekur m.a. fjórhjóladrifnum Ford Focus.
Yvan Muller hefur keppt fjórum sinnum í meistarakeppninni og ekur m.a. fjórhjóladrifnum Ford Focus. Mynd: Getty Images

Tífaldur meistari í ís-kappakstri, Frakkinn Yvan Muller var í dag tilkynntur sem liðsfélagi Sebastian Leob í liði Frakklands í meistarakeppni ökumanna á Wembley í London í desember.

Muller hefur keppt við marga fræga kappa í Andros Trophy ísakstursmótinu í Ölpunum á fjórhjóladrifnum bílum síðustu ár og varð meistari í fólksbílakappakstri árið 2003.

"Þegar manni er boðið í Meistaramót ökumanna, þá er svarið bara já og ekkert annað. Þetta er skemmtileg mót sem kætir áhorfendur í návígi og skemmtun fyrir ökumenn líka", sagði Muller.

Meistaramót ökumanna er liðakeppni á milli landa og takast ökumenn á hvor við annan á samhliða braut á malbiki. Muller og Loeb keppa saman fyrir hönd Frakklands, en Leob tryggði sér rallmeistaratitilinn í fimmta skipti á dögunum.

Mótið á Wembley verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og meðal þeirra sem verða á svæðinu er Lewis Hamilton, nýkrýndur Formúlu 1 meistari og Michael Schumacher sjöfaldur meistari í sömu í íþróttinni.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×