Tónlist

Djassinn vinsæll

Agnar Már segist vera haldinn óttablandinni spennu fyrir tónleikana.
Agnar Már segist vera haldinn óttablandinni spennu fyrir tónleikana.

Jasspíanistinn Agnar Már Magnússon heldur tvenna tónleika í kvöld í tengslum við Jazzhátíð Reykjavíkur. Agnar fær til liðs við sig tvo heimsþekkta tónlistarmenn, þá Ben Street og Bill Stewart sem báðir eru vel þekktir innan jasssenunnar. Sjálfur hefur Agnar vakið mikla athygli fyrir tónlist sína og vann hann meðal annars verðlaun fyrir bestu tónsmíð á Íslensku tónlistarverðlaununum í ár. Tónleikarnir verða haldnir í Vonarsal, þar sem einn glæsilegasta flygil landsins er að finna.

Tónleikar Agnars eru nú í öðru sæti á lista yfir vinsæla tónleika á netsíðunni midi.is og því fer hver að verða síðastur að tryggja sér miða á tónleikana. Aðspurður segir Agnar að fréttirnar komi honum skemmtilega á óvart. „Ég vona að sjálfsögðu að mér takist að fylla húsið. Sjálfur er ég mjög spenntur fyrir tónleikunum, en það vottar líka fyrir smá stressi þar sem þetta eru miklir og merkilegir tónlistarmenn sem ég spila með," segir Agnar að lokum.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×