Bíó og sjónvarp

Ný íslensk brettamynd í bíó

Pétri finnst ótrúlega gaman að gera brettamyndir.
Pétri finnst ótrúlega gaman að gera brettamyndir.

Getting There, ný íslensk snjóbrettamynd, verður sýnd klukkan sex í Laugarásbíói í dag. Pétur Kristján Guðmundsson stendur að myndinni.

„Ég fór út í nóvember á síðasta ári með félaga mínum sem hafði farið aðeins áður. Ég fór út með kameruna mína og snjóbrettið mitt. Svo voru tveir sem Addi (Arnþór Tryggvason) var búinn að kynnast þarna, Finni og Norðmaður sem heita Juhana Pirnes og Torgeir Norkild. Við fjórir urðum alveg geðveikt góðir vinir og tókum upp brettamynd. Það verður gerð önnur held ég, mér finnst þetta svo gaman, ég get ekki hætt þessu. Þótt þetta sé alveg ógeðslega mikil vinna, sérstaklega að klippa. Mikið af kaffi."

Pétur hefur stundað snjóbretti í tíu ár. „Ég var alveg fastur frá fyrsta degi. Svo þegar snjórinn hætti að koma á Íslandi þá flutti ég út." Pétur hefur ekki gert kvikmynd áður, en er með sveinspróf í húsasmíði. „Ég gerði bara smá vídeó fyrir um þremur árum. Það var bara til gamans gert en þessi var stærri, betri og skemmtilegri."

Er einhver sérstök tækni við að taka svona upp? „Það er bara eitthvað sem maður lærir. Ég hef ekki farið í neitt nám út af þessu. Eftir því sem þú gerir meira þá sérðu að þú verður að hafa gott hugmyndaflug. Skot getur verið ömurlegt frá einu sjónarhorni en geðveikt frá öðru. Ég er að pæla að fara kannski í eitthvað nám, en ég veit það ekki."

Frítt er inn á sýninguna. Einnig verður sýnd ný Burton-mynd. - kbs






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.