Tónlist

Rífandi góðir dómar

Fordlandia Jóhanns Jóhannsonar þykir hrífandi og djörf.
Fordlandia Jóhanns Jóhannsonar þykir hrífandi og djörf.

Jóhann Jóhannsson fær rífandi góða dóma fyrir nýju plötuna sína, Fordlandia. Platan er ósungin en segir sögur um misheppnaðar útópíur. Lagaheitin og útskýringar sem Jóhann birtir á netinu segja söguna. Gagnrýnendur beggja vegna Atlantshafsins eru yfir sig hrifnir.

„Töfrandi ritgerð í tónlistarformi," segir Slant tímaritið. „Undursamlega fallegt verk," segir hið útbreidda Q. „Metnaðarfull nútíma-klassík, sem hrífur mann ekki bara, heldur gagntekur mann alveg," segir Drowned in Sound, og Allmusic segir: „Platan er næstum því jafn djörf og sögurnar sem hún segir, nema öfugt við efnivið sagnanna þá nær Jóhann fullkomnum árangri."

Breska útgáfumerkið 4AD gefur plötuna út. Fordlandia er nú loksins á leið til landsins á vegum 12 tóna. Jóhann semur nú tónlistina við Hollywoodmyndina Personal Effects, sem frumsýnd verður á næsta ári. Í aðalhlutverkum eru Ashton Kutcher, Michelle Pfeiffer og Kathy Bates.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.