Tónlist

Góður túr

Stephan Stephensen, Birgir Þórarinsson og Daníel Ágúst Haraldsson skipa hljómsveitina Gus Gus.
Stephan Stephensen, Birgir Þórarinsson og Daníel Ágúst Haraldsson skipa hljómsveitina Gus Gus.
Hljómsveitin GusGus er nýkomin heim úr stuttri tónleikaferð um Japan og var sveitinni gríðarlega vel tekið. Þetta var í fyrsta sinn sem sveitin spilaði þar í landi og flutti hún að mestu nýtt efni á aðaltónleikunum sem haldnir voru í risastórri tónleikahöll, Makuhari Messe. Tilefni tónleikanna var þrjátíu ára afmæli tískusamsteypunnar Diesel.

GusGus spilar næst í Tunglinu á kvöld á Iceland Airwaves-hátíðinni.

Í nóvember ætlar sveitin síðan að ljúka upptökum á sinni sjöttu hljóðversplötu í Tankinum á Flateyri við Önundarfjörð. Platan er síðan væntanleg snemma á næsta ári. - fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.