Erlent

Árás á bandaríska sendiráðsbifreið

Óli Tynes skrifar
Nokkrir bílar sprungu í tætlur í tilræðinu í dag.
Nokkrir bílar sprungu í tætlur í tilræðinu í dag. MYND/AP

Að minnsta kosti þrír létu lífið og fjölmargir særðust þegar sprengjuárás var gerð á bandaríska sendiráðsbifreið í Beirut, höfuðborg Líbanons í dag.

Samkvæmt þeim fréttum sem þegar hafa borist fórst enginn Bandaríkjamaður í árásinni, en farþegi í sendiráðsbílnum er sagður hafa særst.

Svo virðist sem bílsprengja hafi verið sprengd þegar sendiráðsbifreiðin ók framhjá.

Sprengjutilræði eru tíð í Beirut og voru þau um 30 á síðasta ári. Þeim hefur einkum verið beint gegn fólki sem er andvígt miklum áhrifum Sýrlendinga í Líbanon.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×