Körfubolti

Þór styrkir sig fyrir veturinn

Elvar Geir Magnússon skrifar

Körfuknattleiksdeild Þórs Akureyri hefur náð samkomulagi við serbneskan leikmann en frá þessu er greint á vefsíðu félagsins. Milorad Damjanak heitir leikmaðurinn og er mikið tröll.

Hann er 26 ára gamall og nærri 115 kg að þyngd og leikur stöðu miðherja. Að sögn Hrafn Kristjánssonar þjálfara Þórs er hér um að ræða leikmann sem kemur til með að leysa þá stöðu af hólmi sem Robert Reed hafði á síðasta tímabili.

Hrafn telur að Damjanak sé álíka góður varnarmaður og Robert en hann sé hins vegar betri sóknarlega séð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×