Viðskipti erlent

Bílaframleiðendur fá 25 milljarða dollara ríkisábyrgð

Hærra bensínverð hefur haft slæm áhrif á sölu stórra trukka og jeppa.
Hærra bensínverð hefur haft slæm áhrif á sölu stórra trukka og jeppa. MYND/AFP

Bandaríkjaþing hefur samþykkt að gangast í ábyrgð fyrir 25 milljarða dollara lántöku stóru bílaframleiðendanna í Detroit. Þetta er í fyrsta skiptið síðan 1980, þegar bandaríkjastjórn ábyrgðist 675 milljóna dollara lán Chrysler, sem bandarísk stjórnvöld veita bílaframleiðendum fjárstuðning með þessum hætti.

Undanfarið hefur verið orðrómur á kreiki um að stærsti bílaframleiðandi Bandaríkjanna, General Motors, kunni að vera á barmi gjaldþrots.

Talsmenn bílaframleiðenda leggja þó áherslu á að ekki megi líta á þessa aðstoð sem "björgunaraðgerð", hvað þá að hún sé sambærileg aðgerðum ríkisins vegna vandræða fjármálakerfisins.

Talsmenn bílaframleiðenda og þingmenn á bandaríkjaþingi hafa lýst því yfir að ríkisábyrgðin muni koma sér vel við fjárfestingar í þróun og framleiðslu umhverfisvænni bíla.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×