Lífið

Móðir og bróðir Jennifer Hudson létust í skotárás

Móðir og bróðir bandarísku söngkonunnar og óskarsverðlaunahafans Jennifer Hudson fundust látin á heimili sínu eftir skotárás í gær. Lögreglan leitar að sjö ára frænda Hudson sem enn hefur ekki fundist. Þegar hefur einn verið handtekinn í tengslum við skotárásina. Lögreglan telur að um heimilisofbeldi hafi verið að ræða. Hudson vakti fyrst í athygli í bandarísku þáttunum American Idol og vann síðan óskarinn fyrir leik í myndinni Dreamgirls.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.