Sport

Metrómaðurinn Malignaggi mætir Hatton um helgina

Paulie Malignaggi er klár í að mæta Hatton
Paulie Malignaggi er klár í að mæta Hatton NordicPhotos/GettyImages

Paulie Malignaggi er líklega eini hnefaleikarinn sem hefur farið í klippingu í miðjum bardaga. New York búinn Malinaggi stefnir ótrauður á að verða annar maðurinn til að sigra Ricky Hatton um helgina.

Hinn þrítugi Hatton mætir nú aftur til Bandaríkjanna þar sem hann tapaði eina bardaga sínum á ferlinum fyrir hinum ótrúlega Floyd Mayweather í fyrra.

Andstæðingur hans um helgina er engin viðvaningur í greininni þó hann sé ansi skrautlegur og hefur hinn 27 ára gamli Malignaggi aðeins tapað einu sinni á ferlinum.

Þeir tveir gætu líklega ekki verið ólíkari persónuleikar. Hatton er þekktur fyrir sína ofur-ensku Manchester siði. Þykir gott að fá sér kollu, lyfta sér upp og borða ruslfæði.

Andstæðingur hans er metrómaður í ætt við David Bekcham, sleiktur og strokinn með furðulegar hárgreiðslur og fatasmekk á pari við Björk okkar Guðmundsdóttur.

"Mér finnst enginn geta stöðvað mig og ekki láta ykkur bregða þó ég vinni sigur. En ekki búast við rothöggi. Ég er klókur boxari," sagði Malignaggi í samtali við breska sjónvarpið.

Hatton hefur verið þjálfaður af engum öðrum en Floyd Mayweather eldri fyrir bardagann en Malignaggi gerir lítið úr því og segir ekki hægt að kenna gömlum hundi að sitja.

Hatton segist hinsvegar í sínu besta formi og segist enn upp með sér yfir þvi hvað hann eigi marga trausta stuðningsmenn.

"Ég var mikið að spá í það hvort ég hefði hungur í að halda áfram þegar ég byrjaði í æfingabúðunum, en svo small þetta og nú hefur mér ekki liðið betur í tvö eða þrjú ár. Það verður frábært að fá alla þessa stuðningsmenn með sér til Bandaríkjanna aftur, þrátt fyrir að sé kreppa og séu að koma jól," sagði Hatton.

Bardagi þeirra fer fram á MGM í Las Vegas á laugardagskvöldið og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport.

Hitað verður upp fyrir bardagann með því að sýna eldri bardaga Hatton en bein útsending hefst um klukkan tvö um nóttina.





Box



Fleiri fréttir

Sjá meira


×