The Athletic valdi íslensku treyjuna þá ljótustu á EM í ár Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta er eitt af sextán landsliðum sem komust alla leið í úrslitakeppni EM í Sviss en blaðamenn The Athletic eru hins vegar á því að ekkert lið spili í ljótari aðalbúningum á mótinu. Fótbolti 4.7.2025 07:02
Sjáðu þegar stelpurnar hittu Höllu forseta Frú Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, kom í heimsókn til íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta á liðshótelið í Gunten í dag. Fótbolti 3.7.2025 22:30
Heimsmeistarar Spánverja í ham í fyrsta leik á EM Spænska kvennalandsliðið byrjar vel á Evrópumótinu í fótbolta í Sviss en liðið vann 5-0 sigur á nágrönnum sínum frá Portúgal í kvöld. Fótbolti 3.7.2025 20:58
Forsetinn hressti stelpurnar við: „Hitti algjörlega naglann á höfuðið“ Ásmundur Haraldsson, aðstoðarlandsliðsþjálfari, segir það hafa gert stelpunum okkar gott í morgun að fá heimsókn frá Höllu Tómasdóttur forseta, eftir tapið gegn Finnlandi í fyrsta leik á EM í fótbolta í gærkvöld. Fótbolti 3. júlí 2025 12:31
EM í dag: Þungt högg, óvæntur fáni og indverskur matur Það var svo sannarlega þungt hljóð í teymi Sýnar á EM í Sviss, eftir 1-0 tap gegn Finnlandi í fyrsta leik mótsins, og erfitt fyrir menn að sjá mögulega fyrir stelpurnar okkar í framhaldinu. Fótbolti 3. júlí 2025 12:04
Þorsteinn um fráfall Jota: „Sorglegar fréttir“ Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta segir fráfall fótboltamannsins Diogo Jota sorglegar fréttir að fá. Þær setji lífið í stærra samhengi. Fótbolti 3. júlí 2025 11:33
Mínútu þögn fyrir leik Portúgals í kvöld Minning portúgalska landsliðsmannsins Diogo Jota og bróður hans Andre Silva verður heiðruð fyrir leik kvennalandsliðs Portúgals við Spán á EM í kvöld. Jota og Silva létust í bílslysi í nótt. Fótbolti 3. júlí 2025 11:05
Glódís mætti ekki á æfingu Landsliðsfyrirliðinn Glódís Perla Viggósdóttir hefur ekki jafnað sig af magakveisunni sem neyddi hana af velli í gær og mætti ekki á æfingu íslenska landsliðsins í morgun. Fótbolti 3. júlí 2025 09:08
Myndasyrpa: Stelpurnar vel studdar í svekkjandi tapi Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta fékk góðan stuðning úr stúkunni en þurfti að sætta sig við svekkjandi 1-0 tap í fyrsta leik gegn Finnlandi á Evrópumótinu í Sviss. Anton Brink, ljósmyndari Vísis, var á vellinum og fangaði stemninguna. Fótbolti 3. júlí 2025 08:02
„Ótrúlega gott fyrir hjartað að sjá þau“ „Eins og mamma segir: Við fáum fram að miðnætti til að svekkja okkur. Svo höldum við bara áfram, næsti leikur,“ sagði hin tvítuga Katla Tryggvadóttir í gærkvöld, eftir 1-0 tapið gegn Finnum í fyrsta leik á EM. Vonbrigðin yfir tapinu skyggðu á annars stóra stund fyrir hana í Thun í gær. Fótbolti 3. júlí 2025 07:32
Ásthildur Helga: Þetta var bara lélegt Stefán Árni Pálsson fékk systurnar og landsliðsgoðsagnirnar Þóru Björg og Ásthildi Helgadætur til sín í Besta sætið, hlaðvarpi Íþróttadeildar Sýnar, til að fara yfir fyrsta leik íslenska landsliðsins á Evrópumótinu í Sviss. Fótbolti 3. júlí 2025 07:03
Skýrsla Arons: Afleit byrjun sem verður nú að svara fyrir Ef ég hefði skrifað upp dæmi um afleita byrjun á Evrópumóti hjá íslenska landsliðinu fyrir mót þá hefði það líklegast geta innihaldið tap gegn Finnum og tilþrifalitla frammistöðu, að besti leikmaður liðsins myndi þurfa að yfirgefa völlinn og svo til þess að toppa eymdina gætum við misst leikmann af velli með rautt spjald. Fótbolti 2. júlí 2025 23:17
Systurnar hugsi vegna virkni stelpnanna á TikTok Virkni íslensku landsliðsstelpnanna á samfélagsmiðlum var til umræðu á samfélagsmiðlum í kvöld eftir tap í fyrsta leik á Evrópumótinu í Sviss. Tvær landsliðsgoðsagnir tjáðu sig um málið í Besta sætinu. Fótbolti 2. júlí 2025 21:12
Dramatík í endurkomusigri Norðmanna í hinum leik íslenska riðilsins Noregur er á toppi íslenska riðilsins eftir 2-1 endurkomusigur á Sviss í hinum leiknum á Evrópumótinu í fótbolta í Sviss í kvöld. Fótbolti 2. júlí 2025 20:58
Sveindís: Hefði kannski átt að gera meira til að koma mér inn í leikinn Það var auðvitað fúlt fyrir leikmenn íslenska landsliðsins að tapa fyrsta leiknum á EM í Sviss. Sveindís Jane sat lengi vel og íhugaði hvað hafði getað farið betur. Hún fékk úr litlu að moða á löngum köflum og náði ekki að nýta besta færi leiksins í 0-1 tapi gegn Finnum. Fótbolti 2. júlí 2025 19:13
„Heilt yfir var ég bara sáttur“ Landsliðsþjálfarinn Þorsteinn Halldórsson er ósammála flestum og fannst Ísland gera margt gott í tapinu gegn Finnlandi. Hann segir hundfúlt að hafa tapað en mótið ekki búið og nú þurfi bara að spýta í lófana. Fótbolti 2. júlí 2025 19:06
„Ég var bara með niðurgang“ Fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins var í vandræðum með magann sinn í fyrsta leik Íslands á EM og þurfti að fara af velli í hálfleik. Fótbolti 2. júlí 2025 18:53
Ingibjörg: Gríðarlega svekkjandi Ingibjörg Sigurðardóttir var að vonum svekkt með niðurstöðuna þegar íslenska landsliðið tapaði gegn Finnum 0-1 í fyrsta leik EM2025 í Sviss. Liðið náði ekki miklum takti í sinn leik og varð fyrir miklum skakkaföllum í seinni hálfleik sem gerðu verkefnið erfiðara en Ingibjörg gat verið stolt af stelpunum. Fótbolti 2. júlí 2025 18:45
„Mér fannst við alveg halda þeim í skefjum“ Cecilía Rán Rúnarsdóttir segir íslenska landsliðið hafa brugðist vel við og sýnt karakter eftir áföll í leiknum gegn Finnlandi. Henni fannst Ísland halda markaskorara Finnlands vel í skefjum, fyrir utan eitt skiptið þegar hún skoraði. Fótbolti 2. júlí 2025 18:45
Einkunnir íslensku stelpnanna: Cecilía best en liðið betra manni færri Íslenska kvennalandsliðið byrjaði Evrópumótið í Sviss á naumu 1-0 tapi á móti Finnlandi þar sem íslenska liðið var manni færri í meira en hálftíma. Finnarnir fengu færi framan af leik en skoruðu ekki sigurmarkið sitt fyrr en þær voru orðnar manni færri. Fótbolti 2. júlí 2025 18:24
Twitter yfir leiknum gegn Finnlandi: Vonbrigði í Thun Stuðningsmenn íslenska landsliðsins, sem hóf leik á EM2025 í Sviss í dag, létu skoðanir sínar í ljós á samfélagsmiðlinum X sem áður var þekktur sem Twitter. Fótbolti 2. júlí 2025 18:11
Glódís Perla skipti um stuttbuxur í miðjum leik Íslensku stelpurnar eru þessa stundina að mæta Finnum í fyrsta leik sínum á Evrópumótinu í Sviss. Þetta hefur verið viðburðaríkur fyrri hálfleikur hjá fyrirliðanum Glódísi Perlu Viggósdóttur. Fótbolti 2. júlí 2025 16:32
Frábærar myndir af glöðum Íslendingum á EM Mikill fjöldi Íslendinga naut sín í sólinni á stuðningsmannasvæðinu í Thun í Sviss í dag, fyrir fyrsta leik Íslands á EM kvenna í fótbolta. Ljósmyndarinn Anton Brink fangaði stemninguna með frábærum myndum. Fótbolti 2. júlí 2025 15:37
„Við erum betra liðið“ Sérfræðingar Vísis voru sammála um að Ísland sé sigurstranglegra en Finnland fyrir fyrsta leik á EM í Sviss. Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir sló um sig varnagla og sagði finnska liðið ekki eins slakt og margir halda, en systur Ásthildur og Þóra Björg Helgadætur segja ekkert annað en sigur koma til greina. Fótbolti 2. júlí 2025 15:07