Viðskipti erlent

Óvissuástand á hlutabréfamarkaði í Pakistan

Benazir Bhutto, fyrrum leiðtogi Þjóðarflokksins í Pakistan.
Benazir Bhutto, fyrrum leiðtogi Þjóðarflokksins í Pakistan.

Fjárfestar í Pakistan hafa orðið fyrir nokkrum skakkaföllum í kjölfar morðsins á Benazir Bhutto, fyrrum leiðtoga Þjóðarflokksins, sem myrt var á milli jóla og nýárs. Hlutabréfamarkaðir hafa verið opnir í þrjá daga þar í landi frá því leiðtoginn féll frá og lækkað ört.

Óvissuástand ríkir nú í Pakistan um hvort og hvenær kosningar verði haldnar, að sögn fréttaveitunnar Thomson Financial, sem bætir við að ástandið hafi smitað út frá sér til hlutabréfamarkaðarins. Upphaflega stóð til að boða til kosninga 8. janúar næstkomandi. Reiknað er með að niðurstaða fáist í málið um hádegisbil að íslenskum tíma í dag.

Gengi aðalvísitölunnar í kauphöllinni í Karachi í Pakistan féll um 2,3 prósent við lokun markaðar þar í landi í dag. Á mánudag var fyrsti viðskiptadagurinn eftir morðið á Bhutto og féll vísitalan við það um 4,76 prósent og aftur um 2,9 prósent í gær. Morðið hafði sömuleiðis áhrif langt út fyrir landsteina en fjármálaskýrendur í Bandaríkjunum segja það hafa dregið vísitölur þar í landi niður.

Fréttaveitan hefur eftir Shoaib Memon, forstjóra kauphallarinnar, að óvíst sé hvenær endir verði bundinn á óróleikann og geti allt eins verið að markaðir falli enn á ný verði neyðarlög sett í landinu.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×