Viðskipti erlent

Þynnka í upphafi ársins

Iðnaðarmenn að störfum í Bandaríkjunum.
Iðnaðarmenn að störfum í Bandaríkjunum. Mynd/AFP

Fjárfestar upplifðu ekkert sérlega góðan dag við upphaf ársins á hlutabréfamörkuðum en lækkun var víða um heim. Árið byrjaði reyndar ágætlega en snerist við eftir að upplýsingar um framleiðslutölur í Bandaríkjunum lágu fyrir en þær benda til samdráttar.

Vísitalan lækkaði um þrjú prósentstig á milli mánaða í desember og telja fjármálaskýrendur það geta bent til samdráttar á næstunni. Thomson Financial-fréttaveitan segir niðurstöðunni verri en spáð hafi verið.

Framleiðni í Bandaríkjunum hefur ekki verið með minna móti síðan í apríl árið 2003, að sögn breskra ríkisútvarpsins.

Flestar hlutabréfavísitölur stóðu á rauðu í Evrópu í dag. Markaðurinn var hins vegar lokaður hér vegna bankadagsins svokallaða. Þá lækkaði Nikkei-vísitalan í Japan um 1,65 prósent.

Talsverð lækkun var á bandarískum hlutabréfamarkaði. Dow Jones-vísitalan hefur það sem af er dags lækkað um 1,59 prósent og Nasdaq-vísitalan um rétt rúm tvö prósent.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×