Viðskipti erlent

Enn óróleiki á hlutabréfamörkuðum

Verðbréfamiðlarar að störfum í kauphöllinni í Frankfurt í Þýskalandi.
Verðbréfamiðlarar að störfum í kauphöllinni í Frankfurt í Þýskalandi. Mynd/AFP

Gengi hlutabréfa hélt áfram að lækka á helstu fjármálamörkuðum í dag og ljóst að fjárfestar hafa ekki átt láni að fagna á nýju ári. Margir telja að í ljósi meira atvinnuleysis í Bandaríkjunum í desember en reiknað hafi verið með séu um helmingslíkur á því að efnahagskreppa dynji yfir þar í landi á næstunni og geti það haft víðtæk áhrif um heim allan, líkt og norska dagblaðið Aftenposten bendir á í dag.

Árið hefur síður en svo byrjað vel. Hafa ber hins vegar í huga að markaðir hafa margir hverjir ekki verið opnir nema í örfáa daga það sem af er ári, sumir hluta úr degi. Þannig voru hlutabréfamarkaðir aðeins opnir í nokkra tíma í Japan á föstudag en þá féll Nikkei-vísitalan um 1,64 prósent. Í framhaldi af birtingu talna um atvinnuþátttöku vestanhafs féllu svo markaðir í Bandaríkjunum.

Nikkei-vísitalan lækkaði aftur í dag, í þetta sinn um 1,3 prósent. Sveiflur eru hins vegar á mörkuðum í Bretlandi, Þýskalandi og í Frakklandi og eru rétt við óbreytt ástand.

Lækkun er hins vegar á norrænum hlutabréfamörkuðum. Þannig hefur C20-vísitalan í Kaupmannahöfn lækkað um 0,65 prósent, vísitalan í kauphöllinni í Ósló er niður um 0,8 prósent og í sænsku kauphöllinni í Stokkhólmi hefur vísitalan lækkað um 0,4 prósent. Viðskipti hefjast í Kauphöllinni klukkan tíu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×