Viðskipti erlent

Mettap hjá Citigroup

Eitt útibúa Citigroup, sem skilaði mettapi á síðasta ársfjórðungi.
Eitt útibúa Citigroup, sem skilaði mettapi á síðasta ársfjórðungi. Mynd/AFP

Citigroup, stærsti banki Bandaríkjanna, tapaði 9,83 milljörðum dala, jafnvirði rúmra 631 milljarðs íslenskra króna, á síðasta fjórðungi nýliðins árs. Þetta er mesta tap í sögu þessa 196 ára gamla banka.

Langstærsti hluti tapsins er tilkominn vegna afskrifta á fasteignalánasafni bankans og lánavöndlum þeim tengdum upp á 18,1 milljarð dala.

Þá jafngildir afkoman því að tap á hlut nam 1,99 dölum miðað við 1,03 dala hagnað í fyrra. Þetta er jafnframt rúmum dal meira tap en markaðsaðilar höfðu reiknað með, að sögn Bloomberg.

Bankinn hefur þegar gripið til ráðstafana í því skyni að bæta eiginfjárhagsstöðuna. Þar á meðal verða arðgreiðslur lækkaðar um 41 prósent, utanaðkomandi fjárfestir leggur honum til 14,5 milljarða lán með breytirétti auk þess sem 4.200 starfsmönnum verður sagt upp.

Vikram Pandit, sem tók við forstjórastólnum í desember eftir að fyrrum forstjóri bankans var rekinn eftir mikið tap á þriðja ársfjórðungi, segir afkomuna óviðunandi.

Stærstu bankar Bandaríkjanna eru þessa dagana að skila inn uppgjörum sínum og er gert ráð fyrir að þeir þurfi að afskrifa háar upphæðir úr bókum sínum vegna tapa á lánavöndlum sem tengjast bandarískum undirmálslánum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×