Körfubolti

Keflvíkingar seinir í gang

Einn leikur var á dagskrá í Iceland Express deild karla í körfubolta í kvöld. Keflvíkingar unnu frekar nauman sigur á Fjölni í Grafarvogi þar sem liðið tryggði sér sigurinn með góðum endaspretti.

Staðan í leikhléi var 52-44 Keflvíkingum í vil en þegar nokkrar mínútur voru eftir af leiknum náðu heimamenn að minnka muninn í tvö stig. Lengra komust þeir hinsvegar ekki og gestirnir tryggðu sér sigur 102-93.

Kristinn Jónasson og Karlton Mims skoruðu 23 stig hvor fyrir heimamenn en B.A. Walker skoraði mest gestanna, 25 stig, og Jón N Hafsteinsson með 20.

Keflavík er á toppi deildarinnar með 24 stig en Fjölnir er sem fyrr á botninum með 6 stig líkt og Hamar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×