Sport

Roy Jones Jr og Felix Trinidad mætast annað kvöld

Trinidad og Jones eru í fantaformi eins og þeir sýndu á blaðamannafundi fyrir bardagann
Trinidad og Jones eru í fantaformi eins og þeir sýndu á blaðamannafundi fyrir bardagann AFP

Gríðarlega mikið verður í húfi í Madison Square Garden í New York annað kvöld þegar þeir Roy Jones Jr og Felix Trinidad mætast í bardaga í léttþungavigt. Báðir eru komnir af léttasta skeiði sem boxarar, en hætt er við því að sá sem tapar bardaganum geti hallað sér að því að leggja hanskana á hilluna.

Fyrir sjö árum síðan áttu þessir fræknu meistarar að mætast í hringnum en þá kom óvænt stórtap Trinidad gegn Bernard Hopkins í veg fyrir að úr því gæti orðið. Hefði sá bardagi farið fram á þeim tíma, hefði hann líklega orðið jafnstór eða stærri en bardagi Floyd Mayweather og Oscar de la Hoya í fyrra.

Trinidad er frá Puerto Rico og hefur ekki barist í 32 mánuði eða síðan hann tapaði illa fyrir Winky Wright. Hann er 35 ára gamall og hefur m.a. sigrað Oscar de la Hoya í hringnum. Hann hefur unnið 42 bardaga á ferlinum, þar af 35 á rothöggi.

Roy Jones Jr var einróma lofaður sem besti hnefaleikari heimsins pund fyrir pund á síðasta áratug og hefur orðið meistari í fjórum þyngdarflokkum - átta sinnum alls. Hann varð síðast heimsmeistari í þungavigt árið 2003. Jones á að baki 51 bradaga á ferlinum, tapað fjórum og unnið 38 á rothöggi. Hann er 39 ára gamall og er líka mjög liðtækur körfuboltamaður.

Bardaginn annað kvöld verður sýndur beint á Sýn.

Box



Fleiri fréttir

Sjá meira


×