Erlent

Egyptar sárlega móðgaðir

Frá Kaíró.
Frá Kaíró.

Egyptar hafa aflýst fundi með hátt settum embættismönnum Evrópusambandsins, eftir að Evrópuþingið gagnrýndi mannréttindamál í landinu. Egypska utanríkisráðuneytið tilkynnti um þetta í dag.

Í tilkynningu ráðuneytisins sagði að í ljósi hinna neikvæðu viðbragða við samþykkt Evrópuþingsins og hins spennta andrúmslofts sem hefði skapast í Egyptalandi, hafi Egyptar tilkynnt sambandinu að fundurinn væri óviðeigandi. Fundurinn átti að standa á miðvikudag og fimmtudag í næstu viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×