Innlent

Undrameðal út ætihvönn?

Ætihvönn í Dyrhólaey.
Ætihvönn í Dyrhólaey.

Fyrirtækið Saga Medica sem framleiðir margskonar náttúru -og heilsuvörur hefur í tæp tvö ár haft starfsstöð við Ægisbraut á Akranesi þar sem meðal annars er unnið úr fræjum hvannarinnar.

Á síðasta ári uppgötvaðist nánast fyrir tilviljun að hrat, sem fellur til við vinnslu fræjanna, gagnast í baráttu við ýmsa kvilla. Skessuhorn segir frá.

"Hér kom maður sem greip með hnefanum ofan í kar með hrati af ætihvannafræjunum sem verða eftir við framleiðsluna sem búið var að nota einu sinni og setti upp í sig. Hann hafði verið með væga kvilla af ýmsu tagi og fullyrðir að þeir hafi lagast eftir að hann byrjaði að taka eina teskeið af hrati fyrripart dags. Þetta hefur spurst út og sífellt fleiri koma hingað til þess að fá hrat," segir Bjarni Jóhannesson, starfsmaður Saga Medica.

Hann segir að hratinu hafi lengi verið hent en nú sé stefnt á að endurnýta það í svokallaðar Angelicu töflur. "Ég hef heyrt ótrúlegustu sögur þótt ekki séu til margar vísindalegar rannsóknir á ágæti þessara fræja. En eitthvað er það, annars myndi fólk ekki koma aftur og aftur hvaðanæfa að af landinu. Hingað kom maður úr Eyjafirði og fékk fulla vatnsfötu af þessu. Hann ætlaði að dreifa þessu til fjölskyldu sem á við geðræn vandamál að stríða. Aðrir koma og fá fyrir foreldra sína. Mér hefur fundist einna áhugaverðast að fólki finnst það lyftast upp andlega, sérstaklega ef það hefur átt við þunglyndi að stríða. Það er ljóst að hvönnin geymir mörg leyndarmál sem ekki eru komin á hreint."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×