Erlent

100 þúsund börn í fangelsi í Bandaríkjunum

Óli Tynes skrifar
Oft eru börn fangelsuð fyrir litlar sakir.
Oft eru börn fangelsuð fyrir litlar sakir.

Yfir 100 þúsund börn sitja í fagelsum í Bandaríkjunum, mörg fyrir litlar sakir. Bandaríska dagblaðið Chicago Tribune hefur skrifað greinaflokk um ástandið sem blaðið segir að sé skelfileg.

Langverst er ástandið í Texas. Þar eru börn niður í níu ára dæmd í unglingafangelsi í óákveðinn tíma. Það þýðir að þau geta setið inni þartil þau verða tuttugu og eins árs.

Langflest börnin eru svört og frá fátækum fjölskyldum. Mörg þeirra eiga við eitthvað geðrænt vandamál að stríða.

Meðal þeirra er Shaquanda Cotton sem var fjórtán ára gömul þegar hún hrinti eftirlitsmanni sem vildi ekki hleypa henni inn í skólann þegar hún kom þangað of snemma. Hún var dæmd í ótímabundið fangelsi og átti því á hættu að þurfa að sitja inni þartil hún vað fullveðja.

Shaquanda var svo heppin að mannfréttindasamtökin Southern Poverty Law Center SPLC tóku mál hennar að sér og fengu hana lausa eftir eitt ár.

Darius var níu ára gamall þegar hann var dæmdur í ótímabundið fangelsi fyrir að ógna kennara sínum með plastik reglustriku.

Gabe var einnig níu ára. Hann var rekinn úr skóla í eitt ár fyrir að stjaka við kennara. Gabe átti erfitt með að læra og varð útundan og viðskotaillur. SPLC útvegaði hinum sérkennslu og hann plummar sig ágætlega.

Ótölulegur fjöldi annarra barna hafa lent í svipuðum vanda og þau sem hér eru talin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×