Viðskipti erlent

HBSC sagður bjóða í Société Generale

Daniel Bouton, forstjóri Sociéte Generale.
Daniel Bouton, forstjóri Sociéte Generale. Mynd/AFP

Gengi hlutabréfa í franska bankanum Société Generale hækkaði um rúm sex prósent á evrópskum hlutabréfamörkuðum í dag eftir að orðrómur fór á kreik að evrópski bankinn HSBC sé að íhuga að leggja fram yfirtökutilboð í bankann.

Engar tölur hafa verið nefndar í þessu sambandi. 

Talsmaður HSBC, sem er einn stærsti banki heims, vildi ekki tjá sig um málið, samkvæmt fréttastofu Reuters.

Franski bankinn hefur lent í talsverðum hremmingum eftir að hann svipti hulunni af verðbréfaskúrki innan sinna veggja fyrir um hálfum mánuði. Skúrkurinn er sakaður um að hafa tapaði tæpum fimm milljörðum evra, tæpum fimm hundruð milljörðum íslenskra króna, með framvirkum verðbréfasamningum en það leiddi til þess að bankinn tapaði háum fjárhæðum á síðasta ári. Í ljós hefur komið að fjármunirnir sem verðbréfaskúrkurinn notaði voru tíu milljörðum evrum meira en sem nemur markaðsverðmæti bankans.

Af þessum sökum hefur verið ýjað að því að aðrar fjármálastofnanir gætu boðið í bankann. Lengi vel var talið að franski bankinn BNP Paribas myndi bjóða í hann en ekki hefur verið útilokað að erlendur risabanki myndi gera slíkt hið sama, að sögn Reuteres.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×