Viðskipti erlent

Stefnir í fjöldauppsagnir hjá Northern Rock

Viðskiptavinir við útibú Northern Rock.
Viðskiptavinir við útibú Northern Rock. Mynd/AFP

Útlit er fyrir að allt að 2.400 manns verði sagt upp hjá breska bankanum Northern Rock á næstu þremur árum eigi að takast að snúa við rekstrinum. Þetta segir Paul Thompson, einn þeirra sem leiðir yfirtökutilboð Richard Bransons í bankann.

Thompson er kunnur í Bretlandi fyrir að hafa snúið við rekstri fjölmargra fjármála- og tryggingafélaga þar í landi, að því er fram kemur í vefútgáfu Times í dag. Hann reiknar með að á bilinu 10 til 15 prósentum starfsfólks verði sagt upp á ári næstu ár eigi að takast að laga rekstur Northern Rock eftir afleitt gengi.

Branson og aðrir fjárfestar kynntu tilboð sitt fyrir bresku ríkisstjórninni í dag. Vefútgáfa breska blaðsins Times segir hins vegar að Branson hafi vísað því á bug að svo miklum fjölda verði sagt upp. 6.250 manns vinna hjá bankanum.

Eins og fram hefur komið leggur ríkisstjórnin áherslu á að kaupendur Northern Rock greiði til baka eins fljótt og auðið er þau neyðarlán sem breski seðlabankinn hefur veitt bankanum. Þau hljóða upp á 25 til 30 milljarða punda, jafnvirði 3.200 til 3.900 milljarða íslenskra króna. 








Fleiri fréttir

Sjá meira


×